Fjöldi félaga í klúbbnum er 23.
Fundir eru haldnir annan mánudag í hverjum mánuði frá september og fram í maí að báðum mánuðum meðtöldum. Fundartími er frá kl 19-22. Fundarstaðir eru mismunandi, í heimahúsum, á veitingastöðum eða í sölum mismunandi félagasamtaka.
Áætlun um efni funda er lögð fram í upphafi starfsárs auk þess sem gefið er út félagatal. Á fundum er fylgt almennum fundarsköpum þ.e. formaður setur fund, fundargerð síðasta fundar samþykkt og síðan er dagskrá fylgt eftir sem send hefur verið út um viku fyrir hvern fund. Á fundum eru málefni klúbbsins rædd s.s. fjáröflun, styrkveitingar og ýmis önnur mál. Borðaður er léttur málsverður sem nokkrar klúbbkonur hafa útbúið og er því skipt niður á konur yfir starfsárið. Á hverjum fundi er dregið í happdrætti, skemmtinefnd skipuleggur uppákomur og/eða konur segja frá áhugaverðu broti úr lífi sínu.
Árgjald klúbbsins er um 18000 krónur sem skiptist í tvennt, haust og vorgjald. Máltíðir á hverjum fundi kosta um 2.000 krónur og happadrættismiði kostar 500 krónur.
Í stjórn klúbbsins sitja sex konur en allir félagar klúbbnum sitja í nefndum og sinna nefndarstörfum. Ritari sendir út fundarboð fyrir hvern fund.
Stjórn Þórunnar hyrnu starfsárið 2024-2025
Formaður: Anna Marit Níelsdóttir
Varaformaður: Ingibjörg Auðunsdóttir
Ritari: Þórhildur Kristjánsdóttir
Gjaldkeri: Sigríður Sigurðardóttir
Stallari: Jóna Rósbjörg Þorvaldsdóttir
Meðstjórnandi: Aðalheiður Steingrímsdóttir
Félagslög Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu (PDF)