Fréttir

 

Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars 2024

Feyrouz Nouh doktorsnemi, sr. Hildur Eir Bolladóttir fundarstjóri og Brynja Huld Óskarsdóttir, öryggis og varnarmálafræðingur

mynd af akureyri.net

Þann 3. desember tókum við Zontakonur í Þórunni hyrnu þátt í markaðsdegi í Hlíðarbæ. Eins og sjá má af myndunum brettum við upp ermarnar og bökuðum af lífi og sál. Allur afrakstur fer til góðra málefna í nærumhverfi okkar

 

Í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Ljósaganga 30 nóv 2023.

Hulda Sædís Bryngeirsdóttir

 

Friðarbylgja við Hof í tengslum við umdæmisþing Zonta í september 2023.

Ljósagangan 2022. Ingibjörg Auðunsdóttir tendrar ljós fyrir Ásthildi Sturludóttur bæjarstjórna AkureyrÍ tilefni af 100 ára afmæli Zonta

Afhending styrks til Rauða krossins

Í tilefni 100 ára afmæli Zontahreyfingarinnar

Zontaklúbburinn Þórunn hyrna veitti í gær nemendasjóði Verkmenntaskólans á Akureyri 300.000 krónur. Fénu „skal úthluta til stúlkna/kvenna sem þurfa samkvæmt mati sérfræðinga skólans, fjárhagslega aðstoð til að geta keypt tölvu fyrir námið,“ eins og segir í gjafabréfinu.

Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Zontaklúbbsins, afhenti gjöfina og Benedikt Barðason, aðstoðarskólameistari og formaður stjórnar nemendasjóðsins, veitti henni viðtöku.

sjá nánar Zonta: 300 þúsund í nemendasjóð VMA | akureyri.net

 

Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars 2024 stóðu Zontaklúbburinn Þórunn hyrna, Zontaklúbbur Akureyrar og Soroptamistaklúbbur Akureyrar fyrir hádegisfundi að Borgum. Yfirheiti málstofunnar var „Konur á átakasvæðum“. Frummælendur voru tveir, þær Brynja Huld Óskarsdóttir, öryggis og varnarmálafræðingur og Feyrouz Nouh doktorsnemi. Fundarstjóri var sr. Hildur Eir Bolladóttir. Fundurinn var vel sóttur og mjög góður rómur gerðum að efnisþáttum sem frummælendur stóðu fyrir.

Ljósaganga 2023

Í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi gengu Zontakonur í Þórunni hyrnu, Zontaklúbbi Akureyar og Soroptamisaklúbbi Akureyrar ásamt gestum kyndlum prýdd frá Zontahúsinu í Aðalstræti 54 meðfram tjörninni og að Bjarmahlið Aðalstræti 14. Í fylkingarbrjósti fóru bæjarstjóri Akureyrar Ásthildur Sturludóttir og lögreglustjóri Norðurlands eystra, Páley Borgþórsdóttir. Við Bjarmahlið hélt Hulda Sædís Bryngeirsdóttir lektor við HA erindi um kynbundið ofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Hulda Sædís minnti okkur á að ljósin á kyndlunum ættu að minna okkur á mikilvægi þess að kveikja ljós í lífi þolenda ofbeldis.

Upplýsingar um friðarbylgju Zonta í Hofi og umfjöllun um umdæmisþingið má sjá hér Zontakonur sendu bylgju friðar í austur | akureyri.net

Friðarbylgja

Í tengslum við umdæmisþing Zonta í Hofi er boðað til viðburðar föstudaginn 1. sept kl. 16.15. Tökum höndum saman umhverfis Hof Menningarhús og sendum friðarbylgju því Zonta segir nei við stíði og átökum. Allir velkomnir. https://www.facebook.com/events/1468606127312591

 

Umdæmisþing í Hofi

Umdæmisþing 13 svæðis Zonta verður haldið í Hofi á Akureyri 1. og 2. september n.k. Dagskráin hefst með móttökuathöfn í Deiglunni 31. ágúst. Þingið verðu formlega sett 1. september og lýkur með hátíðarkvöldverði laugardagskvöldið 2. september. Sjá nánar hér District 13 Conference 2023 – Zonta International – District 13 (zonta-district13.org)

Söfnun til styrktar Rauða krossinum

Vorið 2022 efndum við til söfnunar til styrktar Rauða krossinum á Akureyri með þeirri ósk að fjármunir sem söfnuðust yrði ráðstafað til kvenna í hópi flóttafólks frá Úkraínu. Söfnunin fólst m.a. í sölu á handverki eftir konur í klúbbnum ásamt því að við efndum til kökulottós í ýmsu formi. Alls söfnuðust 300.000 krónur sem afhentar voru Rauða Krossinum á Akureyri á vordögum. Hér er hlekkur á frétt af akureyri.net sem birt var af því tilefni. 

Zonta 100 ára

Mikil vinna var lögð í afmælishóf vegna 100 ára afmælis Zontasambandsins undir dyggri stjórn Ingibjargar Auðunsdóttur formanns afmælisnefndar  Fundurinn var haldinn 8. nóvember 2019 í Veröld – Húsi Vigdísar og var athöfninni streymt var norður á Borgir. Yfirskrift afmælisfundar var „Ísland í heiminum, heimurinn á Íslandi“, Zonta eflir og styrkir konur
Að loknum erindum var Húsbyggingasjóði Kvennaathvarfsins afhendur styrkur frá Zontaklúbbum landsins að upphæð 3.350.000 kr. Einnig var gestum boðið var upp á kaffi og afmælisköku, bæði í Veröld Húsi Vigdísar og að Borgum.

 

Laufabrauðsgerð er ein helsta fjáröflun Þórunnar hyrnu og má segja að þetta sé einn skemmtilegasti dagur ársins þegar allir koma saman, bæði  meðlimir klúbbsins sem og vinir og ættingar og skera út laufabrauð, steikja, pakka og keyra því út til kaupanda. Þórunn hyrna þakkar öllum sem kaupa brauð af klúbbnum stuðninginn.

 

Ljósaganga

Við upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi hafa Zontkaklúbburinn Þórunn hyrna og Zontaklúbbur Akureyrar fyrir ljósagöngu frá Akureyrarkirkju niður á Ráðhústorg undir slagorðinu ZONTA segir NEI við ofbeldi gegn konum. Árið 2019 bættist Soroptomistaklúbbur Akureyrar í hópinn og hafa klúbbarnir þrír sameinað krafta sína síðan í þessu verkefni.

ZONTA segir NEI er alþjóðleg vitundarvakning um ofbeldi gegn konum og stúlkum. Ofbeldi gegn konum og stúlkum viðgengst í öllum samfélögum, óháð landamærum og menningu. Það hamlar efnahagslegum framförum og kemur í veg fyrir að konur geti tekið fullan þátt í samfélaginu og búið sjálfum sé og fjölskyldum sínum betra líf. Samtakamátturinn skiptir sköpum og því þarf að virkja sem flesta, karlar og konur, til að fyrirbyggja og uppræta slíkt ofbeldi.

 

Kvennafrí 24. okt 2018

Nokkrir félagar í Þórunni hyrnu gengu frá Akureyrarkirkju niður á Ráðhústorg á Kvennafrídeginum 2018 til að styðja við málefnið „Við breytum ekki konum,við breytum samfélaginu“.

 

Vorferðir Þórunnar hyrnu 

Á vordögum fara félagar í Þórunni hyrnu gjarnan í dagsferðir með það að markmiði að hafa gaman saman og ljúka starfsárinu með samveru. Vegna Covid 19 hefur þurft að fresta þessum ferðum í tvö ár í röð. En hér eru þó á síðunni myndir frá ferðalagi klúbbsins til Húsavíkur árið 2016.  Konurnar buðu mökum sínum með og varð ferðin hin mesta skemmtun. Farið var með rútu til Húsavíkur og hvalasafnið skoðað og snæddur hádegisverður á Gamla bauk. Þaðan var haldið á Litlu – Laugar þar sem farið var í sögugöngu og boðið uppá veitingar. Að því loknu var haldið í Eyjafjörðinn og snæddur kvöldverður á veitingastaðnum Silvu og svo endaði þessi frábæri dagur á að farið var á leiksýningu í Freyvangi til að sjá Saumastofuna. Ferðin var í alla staði skemmtileg og mun seint gleymast.

 

 

Zontaklúbbarnir á Akureyri fengu 200.000 króna styrk í tengslum við 100 ára kosningarétt kvenna í byrjun árs 2015.

828 ungar konur fæddar á árunum 1993-1997 búsettar á Eyjafjarðarsvæðinu fengu send póstkort með hvatningarorðum þann 19. júní 2015, um að nýta kosninarétt sinn. Ung myndlistakona, Ingibjörg Berglind Guðmundssdóttir, var fengin til að hanna og myndskreyta kortið.

https://www.althingi.is/pdf/100_ara_afmaeli_kosningarrettar/Skyrsla_til_afmaelisnefndar_Zonta_a_Akureyri_2.pdf

Heimasíða var útbúin í tilefni verkefnisins

https://www.facebook.com/thittexvex/

 

 

Copyright © 2023, Zonta International - District 13.